Okkur er boðið í sumarhitting Fagfélags Næringafræðinga og eftirfarandi er dagskráin:
Sumarhittingur – 5.júní ![]()
Skráning HÉR (Skráningu í mat á YLJU veitingastaðnum lýkur á föstudaginn 29 maí).
Þann 5. júní verður hittingur fagfélagsins helgaður landbúnaði og því sem náttúran hefur upp á að bjóða. Dagurinn verður sameiginlegur með kennurum við matvæla- og næringarfræðideild HÍ.
Lagt verður af stað úr bænum kl. 11:45 og við hvetjum fólk til að sameinast í bíla.
Vinsamlegast látið vita hvort þið hyggist taka þátt í öllum heimsóknunum. Ef ekki takið þá fram hvaða staði þið ætlið að mæta á svo hægt sé að áætla gestafjölda (merkið við í skráningar skjalið).
Það er sérstaklega mikilvægt að skrá sig í matinn þar sem við þurfum að panta fyrirfram. Gott væri að fá sem fyrst yfirsýn yfir fjölda gesta svo hægt sé að láta veitingastaðinn vita.
Gunnbjarnarholt kl. 13:15 – 14:45
(Hlekkur á kort)
Heimsókn á eitt stærsta mjólkurbú landsins þar sem við fáum kynningu á starfsemi búsins og framleiðslu Hreppamjólkurvara. Einnig verður tækifæri til að eiga samtal við framleiðendur.
Garðyrkjustöðin Heiðmörk kl. 15:00 – 15:45
Í garðyrkjustöðinni Heiðmörk er bæði grænmetisræktun og bændamarkaður. Þar eru ræktaðar fjölbreyttar tegundir af paprikum og chilli, ásamt tómötum, gúrku, selleríi og fleiru.
Verið með léttan klæðnað, það verður mjög heitt í gróðurhúsinu. Fyrir þá sem vilja verður hægt að versla brakandi ferskt grænmeti á staðnum, chilli- og papriku plöntur til heimaræktunar og fl.
YLJA veitingastaður kl. 16:00 – 16:50
Kokkurinn Gísli Matt stýrir eldhúsinu og leggur áherslu árstíðabundinn matseðil og staðbundið hráefni meðal annars frá garðyrkjustöðinni Heiðmörk.
Í boði verður súpuborð (3900 kr.), tómata & paprikusúpa, fiskisúpa ásamt heimabökuðu súrdeigsbrauði, þeyttu smjöri, salati og jurta pestói. Hægt er að bæta við eftirrétti fyrir þá sem vilja.
Tyrfingsstaðir kl. 17:15 – 18:45
Kynningu á sjálfbærum búskaparháttum og framleiðslu á Tyrfingsstöðum þar sem er stundaður auðgandi landbúnaður (regenerative agriculture) og ullarvinnsla í spuna verksmiðjunni Uppspuna.
Á bænum eru nautgripir, kindur, kjúklingar, hænur og grísir auk grænmetisræktunar. Í heimsókninni verður hægt að kaupa garn í Uppspuna og egg frá frjálsum hænum.
Við hlökkum til að eiga skemmtilegan og nærandi dag með ykkur! ![]()